Héraðsskjalasafn Kópavogs er opinbert skjalasafn og starfar skv. lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og reglugerð um héraðsskjalasöfn nr. 284/1994. Það er eitt af tuttugu héraðsskjalasöfnum sem starfa á Íslandi á vegum og í eigu sveitarfélaga. Starfsemi þeirra lýtur eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands.
Héraðsskjalasafn Kópavogs er eign Kópavogsbæjar og er rekið á hans kostnað.
Héraðsskjalasafn Kópavogs var stofnað 12. desember árið 2000. Aðdragandi stofnunar þess var Bæjarskjalasafn Kópavogs sem starfaði á bæjarskrifstofum Kópavogs frá árinu 1978.
Leo W. Ingason var héraðsskjalavörður frá stofnun árið 2000 til 2005.
Hrafn Sveinbjarnarson hefur verið héraðsskjalavörður frá því í ársbyrjun 2006.
Héraðsskjalasafn Kópavogs á aðild að Alþjóðaskjalaráðinu ICA (International Council on Archives/Conseil International des Archives)
Héraðsskjalasafn Kópavogs ásamt Héraðsskjalasafni Árnesinga stendur að upplýsingagáttinni skjalavefnum.
Starfssvæði Héraðsskjalasafns Kópavogs er Kópavogsbær.
Ársskýrslur Héraðsskjalasafns Kópavogs eru gefnar út í Ársriti þess.
Húsnæði Héraðsskjalasafns Kópavogs
Héraðsskjalasafn Kópavogs var fyrst til húsa að Hamraborg 1, 3. hæð en fluttist í ársbyrjun 2012 að Digranesvegi 7. Þar er starfsemin til húsa, lestrarsalur notenda og geymslur alls 394,6 m2 þar af eru geymslur 144,8 m2 sem rúma 1.638 hillumetra skjala. Héraðsskjalasafnið hefur einnig geymslur að Fannborg 3-5, 116,6 m2 sem rúma 913 hillumetra skjala.
Héraðsskjalasafn Kópavogs veitir skilaskyldum stjórnvöldum á sveitarstjórnarstigi í umdæmi stofnunarinnar ráðgjöf.
Einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki í umdæmi Héraðsskjalasafns Kópavogs geta afhent því skjöl sín til varðveislu. Þættir í þjónustunni sem ekki vekja að jafnaði athygli snúa að vörslu skjalanna t.d. að gæta efnislegs öryggis og endingar safnkostsins og að tryggja að aðgengistakmarkanir skv. ákvæðum laga, reglna og samninga séu virtar.
Héraðsskjalasafn Kópavogs heldur sýningar á safnkostinum, reglulega myndgreiningarmorgna og gefur kost á kynningum fyrir hópa.
Digranesvegi 7
200 Kópavogur
Skráðu þig til að fá fréttabréf um viðburði, fréttir og menningu í Kópavogi.
Afgreiðslutími
mánudaga – föstudaga
kl. 10 – 16
Lokað á hátíðardögum
Aðgangur er ókeypis
Cookie | Duration | Description |
---|---|---|
cookielawinfo-checkbox-analytics | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics". |
cookielawinfo-checkbox-functional | 11 months | The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional". |
cookielawinfo-checkbox-necessary | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary". |
cookielawinfo-checkbox-others | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other. |
cookielawinfo-checkbox-performance | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance". |
viewed_cookie_policy | 11 months | The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data. |